|
11.03.2010 10:29:49 / el Rey
Allar æfingar í dag, fimmtudaginn 11. mars falla niður vegna veikinda.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
02.03.2010 20:21:24 / el Rey
Æfingarnar hjá Meistaraflokki í Eldingu falla niður næstu tvo miðvikudaga. Einnig fellur niður æfingin hjá Afrekshópnum í næstu viku.
Kveðjur Jollinn
»
16.02.2010 11:27:36 / el Rey
Allar æfingar miðvikudaginn 17. febrúar Öskudag falla niður.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
14.02.2010 16:08:48 / el Rey
Þá er næst seinasta mótinu á Púttmótaröðinni lokið. Það var hörkukeppni um öll sæti nema það fyrsta. Theodór Emil Karlsson stakk alla keppinauta sína af með frábærum hring. Annars voru úrslitin þessi:
1. sæti Theodór Emil Karlsson á 24 púttum 2. sæti Kristján Þór Einarsson á 27 púttum 3. sæti Guðni Birkir Ólafsson á 27 púttum
Seinasta mótið á Púttmótaröðinni verður haldið næsta sunnudag og verður það seinasti séns á að vinna sig inn í Lokamótið sem hladið verður strax að´því loknu eða um klukkan 15:30.
Þeir sem eru komnir með keppnisrétt á Lokamótinu eru:
Aron Skúli Ingason Davíð Gunnlaugsson Guðni Birkir Ólafsson Gunnar Árnason Haukur Hafsteinsson Heiða Guðnadóttir Hilmar Harðarson Jón Hilmar Kristjánsson Karl Loftsson Kristján Þór Einarsson Skúli Skúlason Theodór Emil Karlsson Tomas Salmon
»
08.02.2010 15:12:24 / el Rey
Sæl,
Æfingin sem á að vera í Eldingu (Afrekshópur) þriðjudaginn 9. febrúar fellur niður.
Golfkveðjur Ingi R
»
07.02.2010 15:19:03 / el Rey
Þá er fimmta mótinu á Púttmótaröðinni, af sjö lokið. Úrslit urðu eftir farandi:
1. sæti - Davíð Gunnlaugsson 28 pútt 2. sæti - Haukur Hafsteinsson 29 pútt 3. sæti - Kristján Þór Einarsson 30 pútt
Næsta mót verður haldi næstkomandi sunnudag.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
05.02.2010 10:06:50 / el Rey
Sæl, Það voru þrír sem voru efstir og jafnir í vippþrautunum á æfingunum í gær. Það voru þeir Kristján Þór, Guðni Valur og Theodór Emil sem fengu allir 30 stig. Að lokum vil ég minna á Íþróttamót Meistaraflokks GKJ í kvöld. Það er smá breyting á áður auglýstum tíma. Mæting er klukkan 19 og hefst keppnin hálftíma síðar. Golfkveðjur Ingi R
»
04.02.2010 15:06:26 / el Rey
Sæl öll,
Í dag verða vippæfingar hjá öllum flokkum. Takið með ykkur öll fleygjárnin ykkar.
Golfkveðja Ingi R
»
03.02.2010 18:48:45 / el Rey
 
Sæl öll,
Næstkomandi föstudag, 5. janúar verður haldið Íþróttamót nr1 hjá meistaraflokkskylfingum GKJ í Vélaskemmunni. Þáttökurétt hafa allir þeir sem mætt hafa á meistaraflokksæfingar á árinu.
Keppt verður í 4 greinum: Pútti Pílukasti Borðtennis Póker
Boðið verður uppá gos, bjór og pizzur og hefst keppnin stundvíslega klukkan 18:30 en húsið opnar klukkan 17:30. Farið verður vandlega yfir keppnisreglur og skilmála á mfl æfingunni á morgun af mótstjóra kvöldsins Magnúsi Lárussyni.
Hlökkum til að sjá sem flesta á æfingunni á morgun og á Íþróttamótinu n.k föstudagskvöld.
Gleðikveðjur
Ingi Rúnar Gíslason Íþróttastjóri GKJ
Magnús Lárusson Formaður íþróttamóta GKJ og Viðburðastjóri GKJ
»
31.01.2010 15:09:03 / el Rey
Þá er Púttmóti númer fjögur á Púttmótaröðinni lokið. Það var fámennt en góðmennt í mótinu og ekki nema 10 manns sem mættu til leiks. Þrátt fyrir fámennið voru mjög góð skor í dag en svona fór mótið: 1. sæti Jón Hilmar Kristjánsson á 24 púttum 2. sæti Gunnar Árnason á 26 púttum 3. sæti Kristján Þór Einarsson á 27 púttum Þetta þýðir að Jón Hilmar og Gunnar Árnason bætast í hóp þeirra sem tryggt hafa sér keppnisrétt í Lokamótinu sem haldið verður 21. febrúar. Næsta mót verður haldið næstkomandi sunnudag og vona ég að það verði fleiri sem láti sjá sig þá og reyni að tryggja sér þáttöku í Lokamótinu. Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
31.01.2010 12:55:48 / el Rey

Minni á Púttmótaröðina sem er í gangi í dag frá 12 - 15. Endilega mætið og freistið gæfunnar í skemmtilegu móti. Hringurinn kostar 500 krónur. Heitt á könnunni og hægt að skella sér í borðtennis og pílu í Vélaskemmunni okkar útá Blikastaðanesi. Allir velkomnir.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
28.01.2010 20:03:20 / el Rey
Í dag var púttpróf hjá öllum flokkum. Það voru tveir sem voru jafnir á besta skori en það voru Rafn Stefán Rafnsson og Kristján Þór Einarsson og fengu þeir 61 punkt.
Golfkveðjur Ingi R
»
25.01.2010 13:31:57 / el Rey
Allar æfingar í Básum í dag falla niður vegna veikinda!
Golfkveðja Ingi R
»
24.01.2010 15:58:25 / el Rey
Þá er þriðja mótinu á Púttmótaröðinni lokið. Það voru 15 púttarar sem mættu og freistu gæfunnar. Mikill spenna var fram á lokasprett mótsins en áður en síðustu hóparnir lögðu af stað voru 7 manns jafnir í 2 - 8 sæti. Það fór þó þannig að seinasti hópurinn kom á þremur bestu skorum dagsins og gerðu mótstjórn lífið auðveldara því annars hefði farið fram mikill skrifstofubráðabani milli þessara 7 manna. Leikar fóru á eftirfarandi hátt:
1. sæti Karl Loftsson á 27 púttum 2. sæti Hilmar Harðarson á 29 púttum 3. sæti Kristján Þór Einarsson á 29 púttum
Þetta er mikil blóðtaka fyrir mótaröðina að Hilmar skuli vera kominn inn í Lokamótið þar sem margir leikmenn koma með það eitt að leiðarljósi að halda Hilmari frá Lokamótinu. Næsta mót verður næsta sunnudag og vonum við að sem flestir sjái sér fært að mæta til að styrkja gott málefni.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
17.01.2010 16:08:42 / el Rey
Í dag var tilkynnt hverjir myndu hreppa titlana Íþróttamaður og kona Mosfellsbæjar fyrir árið 2009 í hófi sem haldið var í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ.
Við Kjalarmenn áttum tvo einstaklinga í valinu sitt í hvorum flokknum. Það voru þau Heiða Guðnadóttir og Kristján Þór Einarsson. Til þess að gera langa sögu stutta þá hlaut Kristján Þór titilinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar annað árið í röð. Við óskum Kristjáni til hamingju með nafnbótina. Einnig voru veitt verðlaun fyrir val í landsliðshópa, íslandsmeistaratitla og efnilegustu iðkendur íþróttadeildanna. Efnilegustu kylfingarnir voru þau Arna Rún Kristjánsdóttir og Aron Skúli Ingason. Fyrir að hafa verið valin í landsliðshópa voru Kristján Þór Einarsson, Aron Skúli Ingason, Björn Óskar Guðjónsson og Birnir Snær Ingason. Íslandsmeistarar okkar þetta árið eru Kristján Þór fyrir Íslandsmót í holukeppni og Arnar Sigurbjörnsson Íslandsmeistari 35 ára og eldri.
Ég vil nota tækifærið og óska öllu þessu hæfileikafólki til hamingju með verðlaunin.
Golfkveðjur Ingi Rúnar
»
Síður: 1 2 3 ... 36
|